Á Íslandi eru ýmis úrræði sem geta lækkað kostnað við sí- og endurmenntun — til dæmis styrkir úr fræðslusjóðum/starsmenntasjóðum stéttarfélaga, námsstyrkur fyrir atvinnuleitendur (háð skilyrðum) og stuðningur frá vinnuveitanda.
Við hjálpum þér að átta þig á hvaða leið gæti hentað þér best og hvaða upplýsingar eru gagnlegar að hafa til staðar þegar þú sækir um styrk eða um stuðning.
Mörg stéttarfélög bjóða styrki eða endurgreiðslu vegna námskeiða og símenntunar. Reglur eru mismunandi eftir sjóði, en oft þarf kvittun, upplýsingar um námskeið og staðfestingu á þátttöku. Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvaða úrræði standa þér til boða.
Ef þú ert á atvinnuleysisbótum getur verið mögulegt að fá styrk til starfstengds náms eða námskeiðs sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði (háð mati og samþykki ráðgjafa). Styrkurinn getur að hámarki verið hluti af námskeiðsgjaldi og er bundinn árlegu hámarki.
Í mörgum greinum eru til sértækir starfsmenntasjóðir og fræðslusjóðir sem styðja hæfniuppbyggingu. Í sumum tilvikum geta bæði einstaklingar og/eða vinnuveitendur sótt um styrki til að fjármagna endurmenntun og faglega þróun.
Margir vinnuveitendur bjóða fræðslustyrki eða hafa símenntunaráætlanir (L&D). Við getum útbúið yfirlit um námsleið, tímaáætlun og ávinning fyrir hlutverk/teymi til að styðja við beiðni um stuðning.
Við bjóðum stundum afslætti (t.d. early bird, greiðsla fyrirfram o.fl.). Afslættir geta lækkað heildarkostnað og eru góð viðbót við aðrar leiðir, þar sem það á við.
Nýttu tækifærið til að efla tæknifærni þína og styrkja stöðu þína í starfi. Skoðaðu hvaða úrræði gætu átt við og farðu í næstu skref með skýra mynd af kostnaði og tímaramma.
Teymið okkar getur hjálpað þér í ferlinu — hvort sem þú vilt undirbúa umsókn til fræðslusjóðs, ræða möguleika sem atvinnuleitandi eða fá upplýsingar fyrir vinnuveitanda.
Athugaðu styrki hjá stéttarfélagi/fræðslusjóði, möguleika sem atvinnuleitandi og hvort vinnuveitandi geti stutt við símenntun.
Gott er að hafa lýsingu á námsleið, kostnað, tímasetningar og markmið (hvernig námið nýtist í starfi). Við getum hjálpað þér að setja þetta upp.
Veldu námsleið (Cyber Security, Data Science & AI, Web Development eða UX/UI Design), staðfestu styrk/greiðsluplan og undirbúðu þig fyrir gott upphaf.